Ég meina það
06.02.2006 17:43:28 / sha78

Nýtt Blogg


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 09:24:42 / sha78

Laugardagur til lukku

Jæja hvað segið þið gott, ég segi bara altt frábært, allt gengur alveg ljómandi í DDV, er að borða svo góðann og hollann mat, og hef tekið þá ákvöðun að láta bara vigtina koma mér á óvart, og hugsa sem minnst um einhverjar tölur, er búin að verða stundum fyrir vonbrigðum, en málið ég hef ekki mikla stjórn á þyngdartapinu, ég borða bara minn mat og svo sér líkaminn um að afganginn, mjög fyndið að hugsa um það, en þetta er samt frábært, hef aldrei þurft að hafa eins lítið fyrir þessu eins og núna að léttast, bara gaman af því.

Eftir að vigtunin hádeginu byrjaði á þriðjudögum, hefur bara aukist í þesum tímum, sem er bara alveg frábært fólk er duglegt að nýta sér þessa tíma, og þá jafnast þetta út yfir daginn, ekki eins miklar biðraðir.

Jæja ég hringdi svo í brúðarkjólaleiguna, en það er bara ein hérna á Akureyri, ekki úr mörgu að velja í þeim efnum, en var að spyrja um verð og svona, það kom mér bara á óvart hvað það kostar að leigja brúðameyja og sveinaföt, ætla að panta tíma núna í febrúar, og skella öllum í mátun, og finna eitthvað sem vil hafa, já ég veit ég er tímanlega í þessu en langar að hafa þetta svona til þessa að það verði ekkert stress, og hafa svo bara allt í rólegheitum þegar dagurinn nálgast en meira, annars finnst mér þetta líða ekkert smá hratt núna vikurnar fjúka alveg áfram, og febrúar verður sko búin áður en að ég næ að snúa mér við.

Hafið það gott það sem eftir líður helgarinar

kveðja Scully


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 20:09:14 / sha78

Vigtunardegi lokið

Jæja kvaddi 1kg og Tryggvi 1,5

» 12 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 09:45:22 / sha78

Vigtunardagur gaman gaman

Jæja þá er vigtunardagur upprunnin, og ég ætla ekki að láta það taka mig á taugum, eins og svo oft áður heldur bara að vera róleg og láta þetta koma á óvart, veit hef verið að standa mig vel, og ég veit líka að það eru farnir fullt af cm, þannig að ég get bara verið róleg og látið þetta ekki fara alveg með mig og látið vigtina stjórna því hvernig mér líður, því mér líður vel og er ánægð með hvað ég er að gera góða hluti, ég er líka viss um að hjatalæknirinn minn verður ánægður með mig þegar ég fer til hans eftir ár og þá þarf ég líka ekki að vera með áhyggjur og kvíða fyrir að fara í skoðun, heldur mætir mín bara róleg og spennt, ekki leiðinlegt það. Ég fer alltaf til hjartalæknis á 2 ára fresti, vegna sjúkdóms sem ermjög ættgengur í ættinni minni, og það er bara verið að fylgjst með hvort það verði einhverjar breytingar, en það hefur alltaf verið í lagi nema hann hefur ekki verið ánægður með þyngdina, en ég lofaði síðast að reyna að gera eitthvað í því og ég er að standa við það.

Jæja vinnan kallar, bið að heilsa og hafið það gott og þið standið ykkur vel

Kveðja Scully


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 09:15:27 / sha78

Þið eruð svo frábær, vitið þið það

Takk öll þið höfðuð sko rétt fyrir ykkur, þó að ég hafi þyngdst síðast, þá hafa farið fullt af cm var að máta buxur í gær sem ég hef ekki komst í og viti menn, komst bara í margar og nokkrar sem vantar smá upp á, þannig að í gær var ég bara sátt með að hafa þyngdst, og göngutúrarnir báru árangur í cm og það skiptir svo miklu, komst í buxur sem ég er búin að eiga lengi inn í skáp og aldrei komist í, enda eru þetta einar buxurnar sem ég ætla að léttast til að komast í þær, en svo gekk mér ekkert að léttast, svona hefur þetta gengið í mörg ár, ég keypt mér föt, sem passa ekki, en ætlaði að léttast í þau, en nú er ég búin að sjá fram á að komast í þetta allt, þið vitið ekki hvað ég var glöð í gær þegar ég var búin að máta allar buxurnar, ég bara hoppaði og skoppaði út um allt herbergið.

Þetta gaf mér svo mikið að ég hef fulla trú á að ÉG geti þetta og ÉG skal gera þetta.

Jæja læt þettta nægja núna

kveðja Scully


» 14 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 10:50:50 / sha78

Já þetta er skrítið

Mér finnst lifur orðin góð, já trúið því þessu, ég hélt að ég ætti aldrei eftir að segja þetta, en svona er þetta bara, Tengdóin mín gerir þessa fínu lifur og það var lifur í gær og ég sagði, mmm þetta er bara rosalega gott, þá sagði Tengdó" ég hélt nú að þú myndir aldrei segja að þér finndist lifur góð" og mér finnst frábært að þurfa ekki að kvíða því að það sé lifrardagur, vá hvað allt getur breyst, gaman af því.

Ég er sko ekkert hætt að labba ætla bara aðeins að slaka á þessa viku, og sjá hvort þetta lagast ekki hjá mér, en annars koma alltaf svona stöðnunartímabil og var alveg farin að reikna með að það færi að koma að því, enda var þetta búið að ganga alltof vel, til að þetta væri satt, en vigtunarráðgjafinn sagði líka við mig að það væri auðveldara að taka bara eitt fyrir í einu, þá var hún að meina losna við kílóin fyrst og fara svo að byggja sig upp, það væri auðveldara, og þá er maður líka léttari á sér og tilbúinn að fara að hreyfa sig á fullu og mér finnst það vera rétt hjá henni, því það er gott að hafa eitt verkefni í einu, en ekki tvö, bara svo maður sé ekki að mikla þetta fyrir sér, en hún talar samt mjög mikið um að það sé gott að hreyfa sig og fara göngutúra, þegar maður er illa stemdur og langar í eitthvað sem er ekki gott fyrir mann að skreppa í smá göngu og fara að hugsa um eitthvað annað.

 

Mér finnst alveg frábært að það eigi að fljúga frá Akureyri til Köben, maður getur skellt sér í helgarferð til Köben og það er ódýrara en að fljúga Akureyri-Reykjavík, pælið aðeins í þessu, grunnverð til Köben á farmiða verður 7.995 krónur, og ég ætla að nýta mér þetta, ætla nefnilega að heimsækja Helgu Þórey vinkonu mína í Vínarborg í sumar, hlakka ekkert smá til, vorum að skoða framhaldsflug í gær frá Köben til Vínar, ætla líka að koma við í Fötex þegar ég fer til Köben og kaupa mér nokkrar DDV vörur til að taka með heim.

Fórum til að tala við prestinn í gær og útbúa vottorðið, það var mjög fínt, svo fór hann aðeins yfir þetta með okkur hvernig þetta verður í kirkjunni, og það er komin smá spenningur út af þessu brúðkaupi skal ég segja ykkur, en það er allt að verða komið á hreint, nema fötin á okkur, ætlum að bíða aðeins lengur með að skoða það, enda ef ég á eftir að kveðja 30kg í viðbót, þá þýðir ekkert að vera að hugsa um það strax, en er búin að sjá kjól sem mig langar í, en ætla að bíða aðeins og skoða meira.

Þetta er nóg í bili, hafið það gott

Kveðja Scully


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 23:15:39 / sha78

Æi þetta er svo grátlegt

Aldrei hefði mér dottið í hug að mikil hreyfing hefði þessi áhrif, að maður bara þyngist, en þar sem þetta mataræði er ekki gert með mikla hreyfingu í huga þá er það skiljanlegt, en auðvitað er þetta grátlegt, og ég sem hélt að ég væri að gera rosa góða viku með að hreyfa mig svona, en nei svo var ekki og þarf aðeins að slappa af í labbinu, því ég hef ekkert verið að hreyfa mig og þá hrynja kílóin, en auðvitað er hreyfing til góðs en þar sem maður er ekki að borða svo margar hitaeiningar, þá fer öll orkan í að byggja upp vöðva, en ekki brenna fitu, já ég veit að þetta hljómar undarlega en þetta er samt staðreynd, þannig að ég er ekki að fara að stunda það að labba alveg svona mikið, ætla að slappa af þessa viku og sjá hvort það fari ekki aftur á stað þessi fína brennsla mín.

Og ætla aðbreyta áherslunum aðeins og hætta að hugsa í kílóum og grömmum og hugsa um það hvað mér líður vel að borða þetta mataræði og hvernig þetta er að breyta lífimínu til hins betra, ætla að líta kíló sem fara bara sem auka bónus fyrir mig, það er nefnilega ekki allt ómögulegt við mig, ég hef fallegar hendur og get safnað fallegum nöglum ef ég bara vil, þarf ekki á gervinöglum að halda, oft er ég spurð eru þetta virkilega þínar eigin neglur, og það sem meira er þá eru þær alveg hvítar fremst og það hafa sko ekki allir, þannig að ég er mjög stolt af höndunum mínum, og þakka fyrir þær á hverjum degi.

Hringdi í bróðir minn í dag til að væla í honum út af þessu með vigtunina og hann sagði bara"þetta er nú ekkert til að væla út af, við höfum engar áhyggjur af þessu, þetta er bara smá hindrun.

Jæja og ég sem var að byrja að hreyfa mig því að margir eru alltaf að spyrja"ætlar þú ekki að hreyfa þig eitthvað líka og ég var eitthvað svo ekki tilbúin fyrr en núna og þá fer bara allt í strand, nú ætla ég bara að gera það sem mér finnst rétt, ekki það sem öðrum finnst að ég eigi að gera:$

Jæja er hætt að væla hérna núna og ætla að skella mér í rúmmið til að vakna kát á morgun og byrja upp á nýtt.

Kveðja Scully


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 20:12:28 / sha78

600gr upp:(

Jæja ekki var það að virka að hreyfa sig svona mikið, en svona er þetta þarf að endur skoða þetta allt saman og já hvað er að gerast

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 08:39:30 / sha78

Vá hvað 16kg er þungt

Já þetta er ekkert smá þungt og þessa þyngd er ég búin að vera safna á mig síðustu 14 ár, HVAÐ ERTU AÐ GERA STELPA, HVERNIG GASTU LÁTIÐ ÞETTA FARA SVONA eru hugsanir sem koma upp í hausinn á mér núna þegar hann Tryggvi minn lét mig prófa að halda á 16kg, ég gæti ekki hugsað mér að bera þetta á hverjum degi, en HEY ÉG er búin að vera gera það, hvað var ég að hugsa, EKKI NEITT um SJÁLFA MIG, en nú er komin tími til að springa út fyrir fullt og allt, og ætla ekkert að láta stoppa mig.

Er búin að kaupa mannbrodda og ér get sagt ykkur það þó ég sé eins og gömul kerling þá, er þetta bara allt annað líf að fara út að ganga í hálku, tók smá göngu í gærkvöldi til að prófa þá, og ég get svarið það ég gat bara hlaupið í hálkunni.

Vaknaði 05.30 fékk mér að borða og svo beint út að ganga í 40 mín og gerði æfingarnar sem ég er vön að gera og tók meira á en í gær.

Vigtun í dag, vona að eitthvað hafi farið, er orðin svo þreytt á að það hreyfist ekkert á mælustikuni hér fyrir ofan, en krossa bara puttana og vona það besta.

DDV gengur bara mjög vel þessa dagana, er búin að prófa að búa til hlaup og það var bara mjög fínt, en pælið í því að við erum búin að létta heimilið okkar um 37.4kg það er nú bara slatti, eða eins og eitt barn eða svo, mjög skrítið að hugsa um þetta, og til að þið gerið ykkur grein fyrir fitunni þá eru þetta eins og 75 stykki af 500gr smjörstykkjum, OJ bara, segi ég nú bara.

Hafið það gott þangað til næst

Kveðja Scully


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 09:47:58 / sha78

Mannbrodda takk og svo er ég kantreka

Jæja hvað segi þið gott, ég segi bara allt fínt, nema það að ég skil ekki þessa veðurguði, fyrst snjórar alveg helling og svo kemur hláka og rigning og svo snjóar aftur og svo frystir og svo snjóar aftur, og maður er eins og belja á svelli að reyna að halda sér á fótunum, þannig að nú er svo komið að ég bara verð að fá mér mannbrodda.

Fórum í rosa göngu um helgina í brjálaðri hálku, sá alveg á fólki sem keyrði fram hjá, að þeim fannst þetta ekki beint gáulegt, en ég datt ekkert þó ótrúlegt sé, en rann samt aðeins til, en náði að standa á fótunum sem er nú bara mikið afrek skal ég segja ykkur, því ég er nú ekki sú stöðugasta þegar kemur að hálku, en sem sagt hringdi mömmu og sagðist ætla að labba til hennar, þá sagði hún er ekki hálka úti, ekki alveg að treysta mér he he,* og svo sagði hún í guðanna bænum passaðu þig að detta ekki og brjóta þig*, já hún er svona frekar hrædd við mig og hálku, en það reddaðist.

Bakaði alveg helling í gær, Bananaköku, Súkkulaðiköku, Sandköku og Bananamöffins, og allt DDV vænt, og allt smakkaðist mjög vel.

Jæja haldi þið ekki að sé byrjuð að borða Hafragraut, já haldið þið ekki að maður sé allaaf að þroskast, hef samt alltaf langað mjög mikið að borða hafragraut, en hef samt þótt hann vondur, en tengdó gaf mér þessa fínu aðferð til að búa til grautinn góða, en set smá kanill og smá sultu líka, og þetta er bara alveg mjög gott, skal ég segja ykkur.

Vaknaði 05.30 í morgun, fékk með graut, brauð, epli og majó og að sjálfsögðu heit vatn með sítrónu í til að koma efnaskiptunum af stað, og skellti mér svo út að ganga, var að hugsa um að snú við þegar ég kom út því það var svell og snjór yfir, en herti upp hugann og skundaði af stað, en varð að vera kantreka, því að það var svell yfir öllu, en komst heim heil á höldnu eftir 40 mín göngu og skellti mér á svínahrygginn og gerða magaæfingar og fleiri æfingar og teygði svo á, já ég er nú bara svolítið liðug skal ég segja ykkur.

Það er vigtun á morgun, vigtin mín er eitthvað að stríða mér og taka mig á taugum, sem er bara gott á mig, enda á maður ekki að vigta sig í tíma og ótíma, en þar sem ég stóð í stað síðast, er ég alltaf að athuga hvort það sé ekki eitthvað að gerast á vigtinni.

Hún Þórhildur vigtarráðgjafi hrindi í mig og spurði mig hvort ég vildi vera gjaldkeri í hádegisvigtartímanum, sem hún ætlaði að byrja með, ég sagðist ætla að athuga með vinnunna mína, og það gekk bara mjög vel að púsla vinnunni og þessu saman og mér finnst þetta mjög spennandi, heldur mér allavegna mjög vel við efnið og að ná markmiðum mínum.

Þakka öll kommentin í okkar garð, það gefur okkur mjög mikið að einhver sé að lesa þetta.

Kveðja Scully


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 21:01:21 / sha78

Ath DDV-fólk á Akureyri

Vegna þess hvað eru margir byrjaðir í DDV eftir jól, hefur verið ákveðið að bæta við vigtunartíma sem er á þriðjudögum kl: 12.00-12.45 og fundur frá 12.45-13.15, sem er alveg frábært, og fyrir ykkur sem geta nýtt sér þennan tíma, endilega mætið og látið þetta berast, það var svo mikil biðröð á síðasta þriðjudag, og þetta er bara mjög jákvætt og á að prófa þetta í 2 mánuði og sjá svo til hvernig þetta kemur út.

Sem sagt á þriðjudaginn 24. jan frá 12.00-12.45 og svo fundur frá 12.45-13.15, og hinir fundirnir eru á sama tíma og venjulega


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 16:31:56 / sha78

Ný markmið og nýjar áherslur

Jæja þá er komið að setja sér ný markmið í danska, en verð að passa að hafa þau mjög raunhæf, því ég ríf mig svo niður ef ég næ ekki að standast markmiðin, og það er búið að vera að gerast núna, því mér tókst ekki að ná 20kg markmiðinu:klikk:, og allt er búið að vera alveg ómögulegt, ég er búin að hóta að hætta, en auðvitað er það bara ekki raunhæft að hætta núna, því þetta er auðveldasta sem ég hef gert til að kveðja kílóin og ég sé fram á að komast í kjörþyngd með þessum þætti.

Ég ætla að kaupa mér svona stórann bolta til að sitja á, og til að gera æfingar á mjög sniðugt, þannig að ég bráðlega verð ég rúllandi um allt hús á boltanum, hlakka ekkert smá til, en hef verið dugleg að fara svínahrygginn og gera magaæfingar, það er alveg ótrúlegt hvað þetta tekur mikið í, fór ssvo í göngu í gær með Lenu frænku, og við töluðum brjálað mikið, fórum alveg stórann hring.

Ég ætla að reyna um helgina að labba í kringum Akureyri, ég held að það verði mjög skemmtilegt.:P:haha:

Ég fékk símtal í gær og mér boðið smá verkefni, sem mér finnst svo spennandi, segi frá því seinna, en er búin að redda vinnunni minni, til að taka af mér þetta verkefni, flott að vera í vinnu sem maður getur haft pínu sveigjanlega vinnutíma, en þetta kemur allt í ljós á morgun.;)

Nýja markmiðið mitt er 30kg fyrir PÁSKA og það skal takast, ef ég þarf að hlaupa úti allar nætur, þá geri ég það til að ná markmiðinu mínu, þannig að ef þið sjáið mig á hlaupum út um allann bæ þá vitið þið hvað er í gangi, já Scully að reyna að ná markmiðunum sínum.:lol:

Ég skal segja ykkur það að ég á alveg helling af fötum, fann hálfan ruslapoka af fötun sem ég fer að komast,:D ég get svo svarið það, það kemur ekkert smá á óvart hvað ég á mikið af fötum, og ég er oft að kvart að ég eigi enginn föt, en er búin að komast að því að það er ekki rétt hjá mér, ég held að þetta sé af því að ég hef alltaf farið vel með fötin mín og ég fæ bara hreinlega leið á fötunum sem ég á, og finnst að ég eigi bara enginn föt,:$ og fer þá að leita mér að nýjum fötum og tými svo ekki að henda eða gefa fötin mín.

Jæja þetta er gott í bili og ég kveð kát og glöð enda að fara í 3 daga frí

Kveðja Scully


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 23:41:24 / sha78

Vigtun í dag

Jæja vigtun af lokið og ég stóð í stað alveg upp á gramm, en það getur haft áhrif að ég er búin að vera á svo miklum sýklalyfjum, en það kemur í ljós í næstu vigtun.

Hann Tryggvi minn er búin að kveðja 20kg og er komin í 2 stafa tölu og ég er svo glöð fyrir hans hönd og ætla að láta myndir fylgja af honum frá því hann byrjaði og mynd sem var tekin í dag, en er búin að setja myndir af mér og þær eru undir myndir í aðalvalmynd og segið mér sjáið þið einhvern mun, því ég sé hann EKKI

Hér koma myndirnar af Tryggva mínum

Image Hosted by ImageShack.usImage Hosted by ImageShack.us

Er hann ekki búinn að vera duglegur, allavegna er ég svo stolt af honum, síðan hans er hérna uppi til vinstri og þar eru fleiri myndir af honum ef þið viljið skoða

Kveðja Scully


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8